Dökkar eldhúsinnréttingar hafa verið vinsælar á undanförnum misserum. Hvítar innréttingar eru enn þá vinsælar en það eru færri sem velja bleikan á eldhúsinnréttinguna. Það getur hins vegar virkað vel eins og sjá má í eldhúsi í bænum Dartmouth í Englandi.
Innanhússtofan Field Day sá um að hanna húsið sem er bjart og hlýlegt. Fyrir utan plönturnar sem setja skemmtilegan svip á húsið grípur eldhúsinnréttingin strax augað. Ljósbleiki tónninn og hvíti marmarinn gefa eldhúsinu skemmtilegan og léttan blæ.