Flestir Íslendingar eru ánægðir ef þeir vinna í sumarbústaðahappdrætti stéttarfélagsins, og enn glaðari ef það er heitur pottur. Lítill sumarbústaður í Grímsnesinu hefði þó ekki dugað fyrir fyrrverandi hjónin Angelinu Jolie og Brad Pitt miðað við hús sem þau tóku á leigu fyrir nokkrum árum.
Nú er hús í New York-ríki komið á sölu og er söluverðið 55 milljónir dollara eða vel yfir fimm og hálfan milljarð íslenskra króna. Jolie og Pitt leigðu húsið árið 2009 en húsið er það stórt að þau hefðu geta komist hjá því að hitta hvort annað á meðan þau dvöldu þar. Hins vegar var allt í blóma á þessum tíma og þau skildu ekki fyrr en sjö árum seinna.
25 herbergi eru í húsinu, átta svefnherbergi og yfir átta baðherbergi. Á lóðinni eru einnig tvö gestahús og tennisvöllur. Eins og sjá má á myndunum hefur fjölskylduna ekki skort neitt í húsinu en hjónin fyrrverandi eiga sex börn og því hefur verið nóg pláss fyrir alla.