Það þýðir ekki að gefa neinn afslátt þótt fólk sé í útilegu. Ef þú vilt vera greifinn á tjaldstæðinu þá er þetta málið. Smartland tók saman nokkra hluti sem mikilvægt er að hafa í huga til að halda stílnum í sveitinni.
Ein mesta ferðahelgi þjóðarinnar er um næstu helgi og þess vegna má gera ráð fyrir því að landsmenn séu í óðaönn að pakka fyrir helgina.
Að halda uppi stílnum og huga að fagurfræðinni er mörgum mikilvægt. Hér eru nokkrir hlutir sem vert er að hafa í huga. Greinin er unnin út frá UpCountryCamp á Instagram.
Gott rúm er alltaf frábær hugmynd þegar kemur að sveitinni. Hægt er að fá smart uppblásin rúm á mörgum stöðum í borginni. Góð hugmynd að mati Smartlands er að hafa sængur og rúmteppi með í útileguna. Eins er alltaf fallegt að hafa tjöldin sem við gistum í skreytt grænum greinum og blómum. Ljós tjöld eru alltaf fallegust.
Blóm, teppi og púðar eru hlutir sem verða að vera inni í öllum tjöldum. Ef þú hugsar þér hversu margar nætur þú verður á staðnum, þá muntu sjá að eftir því sem þú kemur þér betur fyrir þeim mun minna muntu eyða á staðnum. Hægt er að festa blóm ofarlega í tjaldinu. En púðarnir og góð aðstaða að liggja á getur líka dregið að fólk úr næstu tjöldum.
Útilega getur reynt á líkamann og þá sér í lagi ef fólk er óvant að liggja úti í tjaldi. Þá er nauðsynlegt að halda í líkamsræktina, borða hollan mat og taka jafnvel með jógadýnuna til að setjast á og teygja úr sér.
Slíkt getur líka dregið að aðra í andlegum hugleiðingum. Maður kynnist ótrúlegasta fólki úti í guðsgrænni náttúrunni.
Að lokum ber að minnast þess að góða skapið og kærleikur í garð okkar sjálfra og annarra er eitt af því sem ekki má gleyma um helgina. Að njóta augnabliksins í fríi með þeim sem manni þykir vænst um er án efa markmið helgarinnar.