Óskarsverðlaunaleikkonan Meryl Streep hefur sett á sölu afar huggulega íbúð sem hún á í New York. Íbúðin er föl fyrir um 25 milljónir dollara eða vel yfir tvo og hálfan milljarð íslenskra króna. Fram kemur á vef Town & Country sem fjallar um eignina að Streep hafi keypt íbúðina árið 2006 ásamt eiginmanni sínum Donald Gummer.
Litríkir munir og stór listaverk lífga upp á hvítmálaða íbúðina. Plöntur gera einnig sitt og eru meira að segja nokkuð stórar plöntur inni á baði, þar af ein sem gnæfir yfir baðkerið.
Húsráðendur forðuðust greinilega að raða húsgögnunum upp við veggi inni í stofu eins og algengt er og má sjá stór húsgögn eins og sófa og borðstofuborð úti á miðju gólfi, sem skapar skemmtilega stemningu.