Ofurfyrirsætan Kate Upton ákvað að koma stóru systur sinni á óvart með því að gera upp hús hennar í Flórída ásamt innanhúshönnuði. Houzz sýndi frá ferlinu og var mikil breyting á herbergjunum sem gerð voru upp að loknu verki.
Vildi Upton gera upp það sem systir hennar og maður hennar áttu eftir að gera upp. Var um að ræða gestabaðherbergi, heimaskrifstofu, hjónaherbergi og baðherbergi inn af því. Áður en Upton og innanhúshönnuðurinn hófust handa voru baðherbergin komin til ára sinna og gangurinn með heimaskrifstofunni og svefnherbergið ekki jafn notalegt og heimilislegt og það er nú.
Fyrir- og eftirmyndirnar hér að neðan og myndbandið frá ferlinu tala sínu máli.
Gestabaðherbergið
Skrifstofa
Hjónaherbergi
Baðherbergi inn af hjónaherbergi