Teppi á gólfinu hjá Sex and the City-stjörnu

Bandaríska leikkonan Kristin Davis setti húsið sitt á sölu í …
Bandaríska leikkonan Kristin Davis setti húsið sitt á sölu í maí. mbl.is/AFP

Bandaríska leikkonan Kristin Davis hefur sett einstaklega huggulegt hús sitt í Los Angeles á sölu. Hin 54 ára Davis hefur átt húsið í rúma tvo áratugi eða síðan um það leyti sem þættirnir Beðmál í borginni fóru í loftið árið 1998 að því kemur fram á vef Los Angeles Times

Hvort húsið væri nógu gott fyrir hina fínu Charlotte vitum við ekki en húsið er þó afar glæsilegt. Útsýnið er stórkostlegt og alls staðar má sjá fágaðan stíl, fataherbergið er meira að segja einstakt. Teppi eru fyrirferðarmikil í húsinu en þau herbergi sem ekki eru teppalögð eru skreytt stórum og mjúkum mottum. 

Davis vill fá 3,3 milljónir dollara fyrir húsið eða rúmlega 410 milljónir. Í fyrra greindi Variety frá því að Davis hefði fjárfest í stærra húsi í sama hverfi og er því líklega kominn tími til að losa sig við það gamla. 

ljósmynd/Compass
ljósmynd/Compass
ljósmynd/Compass
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál