Jóhann Bjarni og Eyrún selja hæðina

Jóhann Bjarni og Eyrún Björk eiga fallega hæð í Laugardalnum.
Jóhann Bjarni og Eyrún Björk eiga fallega hæð í Laugardalnum. Ljósmynd/Facebook

Fréttamaðurinn skeleggi Jóhann Bjarni Kolbeinsson og sambýliskona hans, Eyrún Björk Jóhannsdóttir flugfreyja og stjórnmálafræðingur, hafa sett fallega íbúð sína í Laugardalnum á sölu. Jóhann Bjarni og Eyrún Björk eiga von á sínu þriðja barni og eru að stækka við sig. 

Íbúðin sem er 142,5 fermetrar var tekin í gegn fyrir nokkrum árum og voru meðal annars sniðugar skipulagsbreytingar gerðar á henni. Eldhúsið var fært og því sem áður var eldhús breytt í svefnherbergi. Fyrir vikið myndast skemmtilegt og opið rými þar sem eldhús, borðstofa og stofa mætast. Yfir borðstofuborðinu fá svo falleg hangandi ljós eftir Tom Dixon að njóta sín.  

Af fasteignavef Mbl.is: Laugateigur 15 

Eldhúsið var fært fyrir nokkrum árum og kemur skemmtilega út …
Eldhúsið var fært fyrir nokkrum árum og kemur skemmtilega út á nýjum stað.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál