Hringadróttinssögustjarna tók gamalt hús í gegn

Liv Tyler í eldhúsinu sínu í New York.
Liv Tyler í eldhúsinu sínu í New York. skjáskot/Youtube

Leikkonan Liv Tylor á dásamlegt fjölskylduheimili í New York. Húsið keypti hin 44 ára gamla leikkona árið 2001 og hefur gert fallega upp þannig að gamli stíllinn haldi sér. Tyler veitti hönnunartímaritinu Architectural Digest innlit en myndband úr því má finna á Youtube.

Fólk sem hefur áhuga á fallegum rómantískum húsum ætti ekki að láta innlitið hjá The Lord of the Rings-stjörnunni fram hjá sér fara. 

Húsið var byggt seint á 19. öld og fékk leikkonan arkitekta til liðs við sig til að gera það upp og hugsað var út í öll smáatriði. Gólfefnið fékk Tyler úr hlöðu í New York-ríki. Rúðurnar eru meira að segja með gamaldags áferð. Segir Tyler ljósið dansa öðruvísi á rúðunum í húsinu en í venjulegum gluggum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál