Lára Jóhanna óskar eftir meðleigjanda

Lára Jóhanna Jónsdóttir.
Lára Jóhanna Jónsdóttir. mbl.is/Golli

Leikkonan Lára Jóhanna Jónsdóttir auglýsir eftir nýjum meðleigjanda á Facebook. Lára Jóhanna, sem er leikkona í Þjóðleikhúsinu, býr í fallegri íbúð í Vesturbænum ásamt dóttur sinni. 

Við erum snyrtilegar en ekki þannig að við séum brjálaðar í spritt og ajax. Meira svona yin/yang — drasl/fínt. Við fílum tónlist, bíó, leikhús, jóga og margt margt annað. Við leitum að einhverjum góðum og þægilegum einstaklingi, hvort sem það er endurskoðandi, listamaður, jafnvel einstæð móðir eða faðir. Feministar af öllum kynjum eru sérstaklega velkomin. Hér er nóg pláss og mikil birta, stofan er stór og björt með plöntum og húsgögnin eru samtíningur af allskonar,“ skrifar Lára Jóhanna meðal annars. 

Lára Jóhanna er afar farsæl leikkona og lék meðal annars annað aðalhlutverkið í Shakespeare verður ástfanginn og í kvikmyndunum Lof mér að falla og Undir trénu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál