Ástarhreiður Affleck og Lopez þarf að vera stórt

Ben Affleck og Jennifer Lopez eru kröfuhörð.
Ben Affleck og Jennifer Lopez eru kröfuhörð. AFP/ VALERIE MACON

Stjörnuparið Jennifer Lopez og Ben Affleck eru sögð vera að leita sér að nýju heimili saman. Tæpt ár er síðan að stjörnurnar byrjuðu að stinga saman nefjum aftur og vilja þau stíga næsta skref saman og flytja inn saman. Það er hins vegar ekki auðvelt að gera stjörnunum til geðs. 

Það þarf að vera pláss fyrir alla á heimilinu en Lopez á tvö börn og Affleck þrjú börn. Fram kemur á vef Us Weekly að parið sé enn að leita að draumahúsinu og þau séu með stjörnukröfur. Lopez er sögð vera sérstaklega kröfuhörð og vill ógnarstórt hús.

„J.Lo elskar stórt hús og vill að það sé nógu mikið pláss fyrir fjölskylduna sem kemur í heimsókn,“ segir heimildarmaðurinn og bætir við að húsið þarf að vera með hliði og fjölskyldan þarf að geta verið í friði í húsinu. 

Það sem er á kröfulista söngkonunnar er snyrtistofa, heilsulind og risastórt fataherbergi. Einnig þarf að vera góð baðherbergi fyrir hann og hana. Tvö eldhús eru einnig á lista Lopez og auðvitað sundlaug, gestahús og skrifstofa. 

„Þetta eru miklar kröfur en þau vonast til að finna eitthvað fljótlega,“ sagði heimildarmaðurinn. 

Stjörnuparið Ben Affleck og Jennifer Lopez leita að húsi fyrir …
Stjörnuparið Ben Affleck og Jennifer Lopez leita að húsi fyrir fjölskylduna. AFP/VALERIE MACON
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál