Guðríður Ingibjörg Arnardóttir innanhússhönnuður hefur alltaf verið mikill raðari og þreytist ekki á því að breyta og bæta eigið heimili og heimili viðskiptavina sinna.
Á hennar eigin heimili á Seltjarnarnesi má finna bæði skandinavíska hönnun og eldri húsgögn sem koma frá afa hennar svo dæmi sé tekið. Höggmyndirnar eru einnig í miklu uppáhaldi en þær eru eftir Jón eða Guðmund Benediktssyni sem voru bræður og frændur Guðríðar Ingibjargar.
Heimilið er sett saman á heillandi hátt og er heildarmyndin einstaklega falleg.