Ekki gleyma gamninu á aðventunni

Aðventan á að vera ljúf og skemmtileg, en ekki undirlögð af streitu og önnum. Auðvitað þarf ýmislegt að græja og gera en fólk ætti þó að reyna að gleyma sér ekki í lífsgæðakapphlaupinu. Aðventan er nefnilega til þess að njóta. 

Heimatónleikar

Margir komast ekki í jólaskap nema þeir nái að skella sér á jólatónleika. Þeir sem eru lítið gefnir fyrir hefðbundna jólatónleika geta brugðið á leik og haldið gleðskap þar sem gestir geta spreytt sig á jólakarókí. Þeir sem kunna á hljóðfæri geta jafnvel séð um undirleik og spilað nokkur vel valin lög á meðan gestir hefja upp raust sína.

Spilakvöld með fjölskyldunni

Flestir hafa gaman af því að taka í spil og því ekki vitlaust að kalla stórfjölskylduna eða vini saman. Þá má auðvitað færa spilakvöldið upp á næsta stig, klæðast ljótum jólapeysum upp á stemningu, skella í sig heitu kakói og piparkökum, eða jólabjór ef stemning er fyrir slíku.

Óhefðbundin jólamyndataka

Því ekki að skella í óhefðbundna jólamyndatöku fyrir jólakortin. Ljótar jólapeysur standa alltaf fyrir sínu en gjarnan má færa glensið upp á annað stig, til dæmis með því að pakka krökkunum inn í skrautlegan jólapappír, hengja jólaseríu á ömmu eða hvað svo sem fólki dettur í hug. Stórfjölskyldur og vinahópar geta einnig blásið til keppni og veitt verðlaun fyrir skemmtilegustu jólamyndina.

Safnarölt

Það er notalegt, auk þess sem það nærir andann, að skella sér á safnarölt. Á Íslandi má finna urmul af söfnum sem ættu að höfða til allra. Sum söfn, til að mynda Árbæjarsafn og Þjóðminjasafn, setja einnig saman sérstaka aðventudagskrá fyrir hátíðarnar.

Föndur

Flestum börnum þykir skemmtilegt að föndra, og enn skemmtilegra að skreyta með eigin handverki. Það er því tilvalið að nota það sem til fellur á heimilinu til að búa til jólaskraut. Klósettrúllur og könglar geta til að mynda orðið prýðilegir jólasveinar og sultukrukkur geta fengið nýtt líf sem kertastjakar.

Minningakrukka

Því ekki að búa til fallegar minningar og láta ástvini vita hversu mikilvægir þeir eru. Það er fallegur siður að útbúa minninga- eða hróskrukku, þar sem fjölskyldumeðlimir skrifa fallega athugasemd, minningu eða hrós, fyrir aðra meðlimi. Fjölskyldan les síðan orðsendingarnar í sameiningu.

Smákökubakstur

Hjá sumum koma jólin einfaldlega ekki nema búið sé að skella í nokkrar sortir. Í dag má auðveldlega stytta sér leið og notast við tilbúið kökudeig sem fæst í flestum verslunum. Einnig hafa börn gaman af því að skreyta piparkökur, sem auðvitað má kaupa tilbúnar. Þá vilja sumir frekar útbúa gómsætt konfekt sem einnig er tilvalið til gjafa.

Laufabrauð

Það er góð skemmtun að skera út laufabrauð, og jafnvel enn skemmtilegra að borða afraksturinn. Margir hafa það fyrir hefð að hittast á aðventunni og útbúa girnilegt og gómsætt laufabrauð sem síðan er borið fram með jólasteikinni.

Upplestrarkvöld

Fyrir jólin keppast rithöfundar við að lesa upp úr nýútkomnum verkum sínum. Hvað er huggulegra en að setjast niður eftir annasaman dag og láta lesa fyrir sig upp úr góðri bók.

Skautaferð

Að renna sér á skautum í skammdeginu er klassík sem svíkur engan. Ef veður leyfir er ekki verra að renna sér utandyra. Þá er tilvalið að skottast á kaffihús á eftir og sturta í sig heitum vetrardrykk til að ylja sér.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál