Heimilislegar skreytingar í Hvíta húsinu

Jill Biden er búin að skreyta fyrir jólin.
Jill Biden er búin að skreyta fyrir jólin. AFP

Skreytingarnar í Hvíta húsinu, bústað forseta Bandaríkjanna, eru persónulegri og heimilislegri í ár en oft áður. Þemað í ár er setningin „We the People“ sem er fyrsta setningin í formálanum að stjórnarskrá Bandaríkjanna. 

Venju samkvæmt er það forsetafrúin sem sér um skreytingar Hvíta hússins. Jill Biden forsetafrú skreytti trén í ár með sérstökum kúlum með spegli svo fólk geti séð sjálft sig í Hvíta húsinu. 

„Það er mikill ásetningur á bak við þetta, mjög meðvitað. Það er mjög mikilvægt fyrir forsetafrúna að fólk sjái sjálft sig í skreytingunum,“ sagði talsmaður skrifstofu forsetafrúarinnar.

Skreytingarnar í ár eru heimilislegri og persónulegri en oft áður.
Skreytingarnar í ár eru heimilislegri og persónulegri en oft áður. AFP

170 sjálfboðaliðar

Í aðalhlutverki í skreytingunum í ár eru líka myndir af nemendum, handskrifaðar uppskriftir og einnig gæludýr forsetahjónanna, hundurinn Commander og kötturinn Willow.

Alls eru 77 jólatré í húsinu í ár, 25 kransar og 83.615 ljósaperur. Það voru svo 170 sjálfboðaliðar hvaðanæva að úr Bandaríkjunum sem eyddu viku í að skreyta hvern krók og kima forsetabústaðarins. Þeirra á meðal voru tvær systur forsetafrúarinnar.

Biden tók á móti jólatrjánum 21. nóvember.
Biden tók á móti jólatrjánum 21. nóvember. AFP
Biden ásamt ömmustráknum Beau Biden, syni Hunters Biden.
Biden ásamt ömmustráknum Beau Biden, syni Hunters Biden. AFP
Jólatréð í bláa herberginu.
Jólatréð í bláa herberginu. AFP
Þemað í ár er setningin „We the People“.
Þemað í ár er setningin „We the People“. AFP
170 sjálfboðaliðar voru heila viku að skreyta.
170 sjálfboðaliðar voru heila viku að skreyta. AFP
AFP
AFP
AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál