Hildur Björnsdóttir lögfræðingur hélt uppi stuðinu í 90 mínútur í gær en hún skipar 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Kvöldið er liður í viðburðarröð hjá Landssambandi Sjálfstæðiskvenna. Teitið byrjaði á Reykjavík Röst en færðist svo yfir í bát þar sem Sigga Kling var með partíbingó.
Eins og sjá má á myndunum var allt á útopnu í þessu teiti.