Leynipartí Mads Mikkelsen

Á mánudaginn var útvöldum boðið í lítið leynipartý fyrir leikarann Mads Mikkelsen á vinnustofu Steinunnar Sigurðardóttur fatahönnuðar úti á Granda. Mikkelsen var á landinu þar sem hann hlaut heiðursverðlaun á RIFF fyrir framlag sitt til leiklistar. 

Í veislunni gafst Mikkelsen og eiginkonu hans, Hanne Jacobsen, meðal annars tækifæri til þess að blanda geði við íslenskt listafólk. Voru hjónin og gestirnir mjög ánægð með svona lítið lokahóf í lok heimsóknar þeirra. Hjónin höfðu nýtt tímann á milli veisluhalda hjá RIFF vel og farið í þyrluflug um Suðurland og legið í Bláa lóninu í hálfan dag, auk göngutúra um borgina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál