Allir voru í sparifötunum í Smárabíói í gær þegar því var fagnað að tíu ár eru liðin frá því að kvikmyndin Svartur á leik var frumsýnd. Heiðar Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Sýnar, og eiginkona hans, Sigríður Sól Björnsdóttir viðskiptafræðingur, létu sig auðvitað ekki vanta en hann er einn af framleiðendum myndarinnar.
Raunveruleikastjörnurnar Binni Glee og tvíburarnir Sæmundur og Gunnar Skírnir voru líka mættir og hefur eflaust fundist myndin æði, enda eru þeir aðalstjörnurnar í þáttunum Æði.
Greint var frá því í dag að tvær kvikmyndir myndu bætast við Svartur á leik og þannig yrði myndin hluti af þríleik. Fyrri myndin verður um forsögu Svartur á leik og sú seinni framhaldsmynd sem gerist í nútímanum.