Innanhússhönnuðurinn Sæja fagnaði því á dögunum að vera loksins komin með eigin heimilislínu. Línan er seld í versluninni Vest og því var slegið upp teiti í versluninni. Sæja er einn af eftirsóttustu innanhússhönnuðum landsins og því ekki úr vegi að leyfa fleirum að njóta hennar hugvits. Í línunni eru púðar, teppi og ilmkerti sem fegra heimilið.