Kynlífið með fyrrverandi sóun á tíma

Maðurinn vill ekkert meira en kynlíf með fyrrverandi kærustu sinni.
Maðurinn vill ekkert meira en kynlíf með fyrrverandi kærustu sinni. mbl.is/Thinkstockphotos

Maður sem byrjaði að stunda kynlíf með fyrrverandi kærustu sinni leitaði ráða hjá Deidre, ráðgjafa The Sun

Kæra Deidre, ég er að stunda besta kynlíf lífs mín með minni fyrrverandi en mér líður eins og ég sé að eyða tíma mínum. Við hættum saman fyrir hálfu ári en í nóvember hringdi hún í mig og bað mig um að hitta sig, hún væri einmana. 

Ég geri ráð fyrir að ég hefði átt að átta mig á hvað var í gangi en ég gerði það ekki. Ég var hjá henni. Við töluðum. Við fengum okkur vínglas, eða þrjú, og horfðum á sjónvarpið fram á nótt. 

Hún sýndi mér síðan auka herbergi þar sem var rúm fyrir mig. Eftir að ég fór í sturtu og upp í rúm lagðist mín fyrrverandi við hlið mér. Við stunduðum jafnvel betra kynlíf en við höfðum gert þegar við voru saman. Ástæðan fyrir því að við hættum saman var að hún hélt fram hjá mér með fyrrverandi kærasta sínum. 

Eftir þetta kvöld heima hjá henni höfum við verið að stunda kynlíf reglulega en eins og áður finnst mér mér vera tekið sem sjálfsögðum hlut. Hún kemur fram við mig eins og hún gerði þegar við vorum saman. Hún er betri í rúminu en ég er þó ekki hrifinn af henni lengur. 

Ég ætla ekki að eyða lífinu með henni. Samband okkar er það sem það er, ekki að fara neitt. Hún veldur mér hins vegar áhyggjum með því að tala um að stofna fjölskyldu. Það er ekki það sem ég vil. Ég vil bara kynlífið. 

Ráðgjafinn ráðleggur manninum að nota smokk.
Ráðgjafinn ráðleggur manninum að nota smokk. mbl.is/Thinkstockphotos

Ráðgjafinn segir að hann sé að plata sjálfan sig með því að taka þátt í fantasíum fyrrverandi kærustu sinnar. 

Hún hefur ekki breyst. Af hverju ætti hún að hafa gert það? Þú sagðir það sjálfur hún mun halda fram hjá þegar einhver áhugaverðari birtist. 

Þú viðurkenndir líka að þér finnst hún ekki aðlaðandi. Svo finndu hugrekkið til þess að hætta því sem er í gangi á ákveðinn en góðan hátt. Þannig að þið verðið bæði frjáls til þess að finna einhvern sem er réttur fyrir ykkur sem þið getið eytt lífinu með. 

Vertu síðan viss um að þú leyfir þér ekki að falla aftur fyrir símtali um einmanaleika sem er afsökun fyrir að bjóða kynlíf. Á meðan ég man, meðan þú ert með henni ekki láta hana sjá um getnaðarvarnirnar. Vertu viss um að nota smokk. Barn á leiðinni er ekki flækjan sem þú þarft á að halda. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál