Kynlíf kemur ekki í stað góðrar æfingar þó svo að þú hafi heyrt einhvern segja það. Sumu fólki líður jafnvel eins og það hafi hlaupið heilt maraþon eftir góða kvöldstund. Hversu mörgum kaloríum er maður samt í alvöru að brenna í kynlífi sem endar með fullnægingu?
Blaðamaður Men's Health fór á stúfana og komst að því að maður brennir líklega meira við það að hlaupa maraþon í alvöru. Uchenna Ossai er sérfræðingur í grindarbotninum og fræðir fólk um kynlíf en að sögn hennar brennir hinn venjulegi karlmaður um fjórum kaloríum á mínútu en hin venjulega kona þremur kaloríum á mínútu. Það sama á við um fullnægingarnar.
Ossai gefur sér að kynlíf fólks taki að meðaltali sex mínútur sem gerir það að verkum að fólk brennir að meðaltali 18 til 24 kaloríum í það heila.
Þrátt fyrir að það að fá fullnægingu komi ekki í stað þess að taka á því í ræktinni hefur það jákvæð áhrif á okkur. Fullnæging getur meðal annars linað verki, hjálpað til við svefn, bætt vitsmunalega getu okkar sem og komið okkur í gott skap.