Ekkert kynlíf í þrjú ár en mjög ástfangin

Jacob og Charlotte stunda ekki kynlíf.
Jacob og Charlotte stunda ekki kynlíf. Skjáskot/BBC

Breska parið Jacob og Charlotte eru í frábæru ástarsambandi en hafa samt sem áður ekki stundað kynlíf í þrjú ár. Hversu mikið kynlíf fólk stundar er oft stillt upp sem samasemmerki yfir það hversu hamingjusamt fólk er, en það þarf alls ekki að vera þannig. 

Parið sem hefur verið saman í fjögur ár er í viðtali á BBC en síðustu þrjú ár hafa þau ekki stundað kynlíf og er kynlíf ekki á dagskrá hjá þeim. Ástæðan er sú að Charlotte er eikynhneigð og hefur því ekki kynferðislegan áhuga á Jacop. Jacop laðast þó að Charlotte kynferðislega en virðir hennar langanir. „Jacop hefur oft sagt mér að hann vilji ekki stunda kynlíf með einhverjum sem vill ekki stunda kynlíf. Það hljómar augljóst en margir skilja það ekki,“ sagði Charlotte í myndbandi á vef BBC.

Jacop segir sömuleiðis að sambandið standi ekki og falli með kynlífi. „Þegar allt kemur til alls er ég í frábæru sambandi með yndislegri manneskju og það var ekki hægt að líkja því saman þegar kom að því sem skipti mig mestu máli,“ sagði hann.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál