Sævar Þór Jónsson lögmaður/MBA svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hann spurningu frá manni sem býst ekki við að fá arf.
Sæll Sævar.
Varðandi arf, þá skildu foreldrar mínir og ég mun ekki erfa föður minn. Hann fór þá leið að setja allar eignir sínar á sína seinni konu til að koma í veg fyrir að ég fengi eitthvað. Þannig að það er hægt að komast að því að greiða börnunum úr fyrra hjónabandi arf.
Kveðja, J
Sæll,
Almennt er mönnum frjálst að ráðstafa eignum sínum með lífsgjöfum þó svo að með þeim hætti rýri maður efni sín allmjög og þar með skert verulega þau verðmæti sem ganga munu í arf eftir hann. Tilvonandi erfingjar verða að jafnaði að sætta sig við þessa gerninga. Heimildir erfingja til að tempra hið stórfellda örlæti er því harla takmarkað. Þeir eiga þó þann kost, sé gjafmildi komin vel yfir mörk hins eðlilega og að það sé til þess fallið að skerða fjárhag aðila verulega, að krefjast þess fyrir dómi, að hann verði sviptur fjárræði eða gripið til annarra úrræða sem lögræðislög nr. 71/1997 mæla fyrir um. Þess skal þó sérstaklega getið að framangreind úrræði eru býsna ósennileg til ávinnings ef grundvöllur þeirra er fyrst og fremst skert arfsvon.
Kveðja,
Sævar Þór Jónsson lögmaður.
Liggur þér eitthvað á hjarta?
Þú getur sent Sævari spurningu HÉR.