„Ég gæti látið alla mína hluti frá mér ef lífið lægi við“

Inga Lind Karlsdóttir.
Inga Lind Karlsdóttir.

Inga Lind Karlsdóttir stóð í ströngu í haust þegar önnur sería af Biggest Loser Ísland var tekin upp en þættirnir fara í sýningu 22. janúar. Á dögunum eignaðist Inga Lind hvolp og hefur aldrei verið jafnhugfangin af neinu sem hún hefur keypt.

Hvað er það seinasta sem þú keyptir þér og elskaðir? „Hvolpurinn Xavi. Ég hef aldrei elskað neitt, sem ég hef keypt, eins mikið.“

Í hverju ætlarðu að fjárfesta næst? „Xavi vantar nýtt og stærra búr og mig vantar nýjan kinnalit.“

Hver er ógleymanlegasti staður sem þú ferðaðist til á seinasta ári?
„Ég á aldrei eftir að gleyma Silfru í Þingvallavatni. Það var eitthvað svo brjálað að kafa ofan í sprungu í 2ja gráðu köldu vatni (sem ég hef alist upp við að gæta mín á að detta ekki út í) og sjá þar að auki liti sem ég hef hvergi séð áður.“

Hver er besti minjagripur sem þú hefur tekið með þér í ferðalagi?
„Ég á mjög fallega minjagripi síðan ég heimsótti Tógó í Afríku, fallega tréútskurði, skálar, grímu og fleira. Ég held mikið upp á þá.“

Hvaða hlut myndir þú aldrei láta frá þér?
„Hlutir eru bara hlutir. Ég gæti látið alla mína hluti frá mér ef lífið lægi við.“

Seinasta máltíð sem þú naust virkilega að borða?
„Kalkúnaveisla ásamt vinum hérna í Barcelona á Día de los Reyes, sem er ein helsta jólahátíðin hér í landi, 6. janúar. Við sátum lengi frameftir og nutum hvers einasta bita enda nóg af stórkostlegu meðlæti.“

Hver er sá munaður sem þú gætir aldrei sleppt?
„Heitt bað. Ég elska baðker með heitu vatni í. Best ef það er freyðibað. Hef stundað slík böð síðan ég var barn. Ég er nefnilega kuldaskræfa.“

Hver er seinasti aukahlutur sem þú keyptir þér?
„Eyrnalokkar sem eru ekki eins. Annar er lengri en hinn. Mjög kúl.“

Uppáhaldssnyrtivara?
„CC-kremið frá Clinique og kinnaliturinn sem mig vantar frá MAC.“

Uppáhaldssmáforrit?
„Er iBooks smáforrit? Ég elska að ganga um með allar bækurnar mínar í rassvasanum og geta lesið hvar sem er og hvenær sem er.“

Ingu Lind vantar nýjan kinnalit frá MAC.
Ingu Lind vantar nýjan kinnalit frá MAC.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál