Magnús Scheving skellti sér á skeljarnar

Hrefna Björk og Magnús Scheving eru trúlofuð.
Hrefna Björk og Magnús Scheving eru trúlofuð. Freyja Gylfa

Magnús Scheving og Hrefna Björk Sverrisdóttir eru trúlofuð en Magnús bað Hrefnu með pompi og prakt á veitingastaðnum ROK í kvöld þar sem þau fagna nýju árin ásamt nánustu vinum og vandamönnum. Á meðal gesta á ROK í kvöld sem er einmitt í eigu Hrefnu Bjarkar eru þau Hrefna Rósa Sætran, kokkur, Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Ýr Þrastar, fatahönnuður, Ari Alexander, listamaður, líkamsræktardrottningin Anna Eiríksdóttir og fleiri góðir.

Magnús og Hrefna hafa verið par frá árinu 2014 en þau störfuðu saman í Latabæ.

Smartland óskar parinu hjartanlega til hamingju!

Veitingastaðurinn ROK þar sem bónórðið átti sér stað.
Veitingastaðurinn ROK þar sem bónórðið átti sér stað. mbl.is/Þórður
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál