Þakklát fyrir að vera á lífi

Lay Low er næsti viðmælandi í Trúnó, sem verður sýndur í opinni dagskrá í kvöld klukkan 20.20 í Sjónvarpi Símans. Hún kom sá og sigraði með fyrsta laginu sem hún sendi frá sér árið 2006 Please Don’t Hate Me. Hún er fær gítarleikari en hóf feril sinn sem bassaleikari og spilar auk þessa á fjölda hljóðfæra. Hún er snjall laga- og textasmiður og mikill stúdíónörd. Plötur hennar eru margverðlaunaðar.

Á síðustu árum hefur lítið heyrst frá tónlistarkonunni en hún hefur þó ekki setið auðum höndum. Í Trúnó segir hún okkur frá tveimur heimum sem hún hefur átt við alla ævi og hvernig hún felur sig í tónlistinni.

Öll þáttaröðin er aðgengileg í Sjónvarpi Símans Premium.

Lay Low er gestur Trúnó.
Lay Low er gestur Trúnó.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál