Söngkonan Jóhanna Guðrún prýðir forsíðu MAN sem kemur í verslanir á morgun, fimmtudag. Jóhanna vakti mikla athygli á dögunum fyrir frammistöðu sína í þáttunum Allir geta dansað en hún bar sigur úr býtum ásamt dansherra sínum Max Petrov.
Jóhanna Guðrún er í dúndurformi enda voru æfingar fyrir þættina stífar auk þess sem hún og sambýlismaður hennar tóku mataræðið föstum tökum fyrir nokkru síðan. Jóhanna sem þjáðst hefur af gigt frá barnsaldri segir líðanina vera allt aðra eftir að hún tók bólgumyndandi fæðutegundir út undir lok árs 2016.
„Við tókum hveiti og sykur út að mestu leyti og svo flestar mjólkurvörur nokkrum mánuðum síðar. Í raun tókum við alla bólgumyndandi fæðu út. Í framhaldi af þessu hrundum við bæði niður í vigt og ég hef eiginlega bara verið góð af gigtinni þó svo að ég muni ekki hætta á lyfjunum. Ég finn að ef ég held mig við þetta mataræði er ég í lagi en ekki ef ég svindla sem kemur fyrir þegar maður er bugaður og þreyttur. Eins og eftir upptökuna á einum Allir geta dansað-þættinum fórum við á Dominos og ég hakkaði í mig pítsu og er í raun enn að jafna mig. Eins og það hljómar óhuggulega þá er það svo að ef meltingin er í lagi þá er allt í lagi með þig. Bólgur og annað sem ég var að eiga við áður fyrr er ekkert vandamál í dag,“ segir hún.