Tvífari Meghan hertogaynju veldur usla

Akeisha Land til vinstri og Meghan hertogaynja til hægri.
Akeisha Land til vinstri og Meghan hertogaynja til hægri. Samsett mynd

Tveggja barna móðirin Akeisha Land frá Missouri í Bandaríkjunum er óhugnanlega lík Meghan hertogaynju af Sussex. Svo lík að fólk stoppar hana oft úti á götu eða í búðinni.

Hún birti nýlega mynd af sér á instagramreikningi sínum, reikningi sem hún stofnaði til að birta myndir af börnum sínum tveimur í leik og starfi. Hún hefur fengið fjölda athugasemda og læka frá fólki um allan heim vegna þess hversu lík hún þykir Meghan. 

„Fólk kemur upp að mér og segir „hefur einhver sagt þér að þú er alveg eins og ...“ og ég byrja bara að hlæja áður en fólk nær að klára að segja hverjum ég líkist því ég hef heyrt þetta svo oft. Sérstaklega eftir að ég fór að slétta á mér hárið,“ sagði Land í viðtali við Daily Mail

„Jafnvel vinir mínir og fjölskylda segja að ég sé mjög lík henni. Ég sé samt ekki líkindin á milli okkar, en ég tek þessu klárlega sem hrósi þar sem hún er ótrúlega falleg,“ sagði Land.

Hún grínaðist með að sig langaði til að heyra í starfsfólki Meghan og láta vita að hún gæti sinnt ýmsum störfum fyrir hana ef hana langaði ekki til að fara á tiltekna viðburði.

Fólk stoppar Land oft úti á götu.
Fólk stoppar Land oft úti á götu. skjáskot/Instagram
Myndin sem fékk athyglina.
Myndin sem fékk athyglina. skjáskot/Instagram
Meghan.
Meghan. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál