Léttist um 13 kíló á einum mánuði og skeit blóði

Aron Már Ólafsson.
Aron Már Ólafsson. mbl.is/Árni Sæberg

Aron Már Ólafsson er einn efnilegasti leikari þjóðarinnar og hefur um langt skeið verið ein vinsælasta samfélagsmiðlastjarna Íslands. Í viðtali við Sölva Tryggvason í nýju podcasti Sölva talar Aron um upphafið á leiklistarferlinum, þegar hann fékk sitt fyrsta hlutverk á sviði, sem boxarinn Leroy í Bugsy Malone.

Sölvi Tryggvason er byrjaður með hlaðvarp, Podkast með Sölva Tryggva.
Sölvi Tryggvason er byrjaður með hlaðvarp, Podkast með Sölva Tryggva.

„Ég var alveg að kúka í buxurnar allt ferlið... þegar ég fæ hlutverkið þá eru bara dansarastrákar og fimleikastrákar sem eru í þessu og ég bara að borða hamborgara og var hættur í íþróttum,“ segir Aron meðal annars og lýsir því síðan hvað hann gerði í kjölfarið eftir að hafa hitt einkaþjálfara sem sagði honum að skera út kolvetni. Aron tók það bókstaflega og tók út öll kolvetni og hálfsvelti sig, án þess að hafa aðlagað sig neitt frá því að borða mikið og óhollt.

„Ég kem heim einhvern tíman eftir æfingu og dett niður í sófann og það líður yfir mig. Svo fer ég á klósettið og skít blóði… og svo fer ég á sjúkrahús, þar sem mér er sagt að ég sé með bullandi næringarskort,” segir Aron.

Hann léttist í kjölfarið um 13 kíló á einum mánuði og segir þetta tímabil til marks um þær öfgar sem hann eigi til þegar hann bítur eitthvað í sig. Hann segist elska að starfa við leiklistina og sér ekki fram á annað en að hann muni halda því áfram.

Í viðtalinu ræða Sölvi og Aron um systurmissir Arons, samfélagsmiðlana, leiklistina, upplifanir Arons í Suður-Ameríku og margt margt fleira.


Hér er hægt að hlusta á viðtalið á Spotify: 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál