Fann fyrir mikilli skömm vegna klámfíknar

Guðmundur Ingi Þorvaldsson.
Guðmundur Ingi Þorvaldsson. Ljósmynd/Tjarnarbíó

Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar. Guðmundur, sem hefur leikið fjölda hlutverka bæði hér heima og erlendis ræðir í þættinum um tímabil þar sem hann var í basli með sjálfan sig vegna klámfíknar. 

„Ég var búinn að þróa með mér skömm ótta og sektarkennd mjög ungur og líka þennan óheiðarleika sem ég held að hafi fylgt uppeldinu hjá mjög mörgum á Íslandi. Ekki það að ég væri alltaf að ljúga, heldur meira varðandi tilfinningar. Bara að maður væri alltaf fínn þó að maður væri að glíma við eitthvað sem var erfitt. Hjá mér byrjar þetta mjög saklaust. Ég var í sveit og það var alltaf mikið af vinnumönnum og klámblöð undir rúmum og auðvitað kom fyrir að maður var einn heima að leika og sá einhver blöð undir dýnum þegar maður var að leika. Sumt af þessu var mjög saklaust, eins og brandarablöðin sem voru með teikningum og tígulgosinn, sem var með erótískum sögum og myndum. Ég man að ég las stundum upphátt úr þessu fyrir lesblindan frænda minn þegar við vorum 10-12 ára gamlir. Svo man ég að fyrst var keypt eitt video-tæki á Reykholtsstaðinn sem svo var lagður kapall frá í öll húsin í kring, svo voru menn að stelast til að setja í hryllingsmyndir og klámmyndir á næturna. En svo þegar video-tækin fóru að koma inn á heimilin almennt gerist það svo að við vinirnir fundum alltaf einhverjar spólur hér og þar og fórum að stelast til að horfa á klámmyndir. En ég man að þegar strákarnir vildu svo hittast og horfa á þetta saman þegar einhver var einn heima vildi ég ekki vera með í því, en vildi svo vera einn í mínu horni að gera það sama,“ segir Guðmundur. 

Guðmundur segir að það sem hafi sett hann í vandræði hafi verið einangrunarhegðun, sem er mjög oft það sem býr til fíknivanda. 

„Það sem síðan býr til vandann er að þetta er allt eitthvað sem er verið að gera í felum og maður þorði ekki að segja neinum frá. Það sem býr til þessa skömm er að maður er alltaf að gera þetta í einrúmi. Svo fer maður út í lífið með þá hugmynd að konur séu annars vegar klámmyndadrottningar og hins vegar guðum líkar verur eins og mæðurnar og ömmurnar í sveitinni sem sáu um heimilin. Og þetta er ekki góð blanda ef maður gerir sér síðan ekki grein fyrir að raunveruleikinn er aðeins öðruvísi.Þessi klámvæðing í bland við skömmina og slæmar hugmyndir um karlmennsku ertu kominn með hræðilega blöndu fyrir unga stráka.“

Guðmundur lék nýlega lykilhlutverk í tölvuleiknum Assassins Creed Valhalla, sem er á stærðargráðu sem fæstir gera sér grein fyrir. Í þættinum segir Guðmundur frá reynslunni að leika í þessu verkefni.

„Þetta er svo ofboðslega stórt að maður gerir sér enga grein fyrir því. Ég skildi í raun ekkert hvað þetta var þegar ég fór í prufuna fyrir þetta hlutverk.

En að fara inn í þennan heim og hitta allt þetta fólk sem er að vinna að þessu er í raun sturlun. Þegar þeir sem standa að tölvuleiknum gáfu út trailerinn fyrir leikinn fengu þeir 100 milljón áhorf á fyrsta sólarhringnum! Montreal, þar sem þetta var tekið upp, er ein af höfuðborgum tölvuleikjaiðnaðarins. Ég held að það hafi verið á bilinu sex til átta ÞÚSUND manns búin að vinna að þessu í þrjú ár þegar við komum inn. Þegar maður fer inn í höfuðstöðvarnar fer maður upp hæð eftir hæð eftir hæð og sér forritara eins langt og augað eigir. Það er rússneskt útibú sem gerir ekkert annað en að sjá um dýrin í leiknum.“

Það tók hann svolítinn tíma að venjast því að leika þetta hlutverk, enda öðruvísi en að leika á sviði eða í bíómyndum. 

„Þetta minnti mig mest á að æfa fyrir það að leika á sviði. Þú ferð í þröngan galla og svo eru svona litlir ljósnæmir punktar úti um allt og svo ferðu inn í rými sem er eins og leikfimisalur og það eru myndavélar alls staðar sem eru að pikka upp þessa ljósnæmu punkta. Svo sérðu þig bara á skjá sem fjólubláa punkta sem hreyfast í leikmynd sem þú sérð á stórum skjá. Svo er maður með hjálm með fjórum myndavélum sem taka stanslaust upp, vegna þess að sá sem er að spila leikinn á alltaf að geta snúið sér hvert sem er. Þannig að þetta er ekki eins og þegar það er verið að taka upp bíómynd og það koma pásur. Að því leiti er þetta líkara því að vera á sviði, af því að þú ert alltaf ,,on”. En þetta var mjög skrýtið fyrst. Að vera með mótleikarann á móti sér og við báðir með hjálm í einhverjum göllum, en svo venst þetta og var mjög skemmtilegt.“

Í þættinum ræða Sölvi og Guðmundur um leiklistina, stöðu ungra karlmanna í samfélaginu, fíknisjúkdóma, hvað það er sem einkennir okkur sem þjóð og margt margt fleira.

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál