Edda segist hafa bundið enda á sambandið

Íþróttakonan og crossfitkeppandinn Edda Falak opnaði sig um sambandið við …
Íþróttakonan og crossfitkeppandinn Edda Falak opnaði sig um sambandið við Binna á Instagram í gær. Skjáskot/Instagram

Íþróttakonan Edda Falak segist hafa bundið enda á samband hennar og áhrifavaldsins Brynjólfs Löve eftir aðeins þriggja mánaða samband. Smartland greindi frá því í gær að parið væri hætt saman. 

Í story á Instagram segist Edda hafa fengið yfir 100 skilaboð í kjölfar frétta að þau væri hætt saman. „Þið þurfið ekki að senda mér fleiri samúðarkveðjur. Ég skil vel að þetta fylgir því að vera opin persóna en það er nú soldið síðan ég batt enda á samband mitt við Binna, sem stóð yfir í þrjá mánuði. Takk fyrir áhugann og takk fyrir að spyrja. Engar áhyggjur af mér að hafa elsku vinir,“ skrifaði Edda á Instagram. 

Edda og Binni voru opin með samband sitt á Instagram og sýndu mikið frá ævintýrum sínum þar. Samband þeirra hlaut enn meiri athygli eftir að Binni fékk sé húðflúr með nafni Eddu eftir aðeins nokkurra vikna samband. 

Binni Löve og Edda Falak voru saman í þrjá mánuði.
Binni Löve og Edda Falak voru saman í þrjá mánuði. Samsett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál