Fór í djúpt þunglyndi eftir Ungfrú Ísland og Áttuna

Donna Cruz tók þátt í Ungfrú Ísland 2016.
Donna Cruz tók þátt í Ungfrú Ísland 2016.

Donna Cruz er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Donna, sem flutti fjögurra ára gömul til Íslands frá Filippseyjum, sló nýlega í gegn fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Agnes Joy, þar sem hún fór með eitt af aðalhlutverkunum. Þegar Donna byrjaði í grunnskóla var lítið um innflytjendur á Íslandi og hún upplifði erfiðleika við að vera öðruvísi sem barn:

„Þegar ég byrjaði í grunnskóla vorum við fimm sem vorum af erlendu bergi brotin í öllum skólanum. Ég man að ég skammaðist mín mjög mikið fyrir að vera öðruvísi og fannst ég aldrei alveg eiga heima þarna. Nestið mitt var öðruvísi en hjá hinum krökkunum og ég man að ég sagði oft við mömmu að ég vildi ekki taka nestið með mér. Maturinn minn var öðruvísi og það var önnur lykt af honum og ég henti nestinu oft. En ég hef sett rosalega margt af því sem ég upplifði sem barn ofan í skúffu, af því að ef ég væri stanslaust að pæla í því myndi ég ekki lifa af. Ég er búin að vera að bæla sumt niður, en eftir „Black Lives Matter“ og fleira hef ég verið að opna skúffuna meira og horfa á þessar upplifanir. Það er stundum vont, en það er mikilvægt til þess að þekkja sjálfan sig betur. En ég geri það í skömmtum svo það verði ekk yfirþyrmandi. Sem betur fer er margt að breytast og ég held að í dag þætti það bara flott að mæta með asískan mat í skólann og krakkarnir myndu vilja smakka.“

Donna var í Vottum Jehóva í gegnum alla barnæskuna, en á unglingsaldri áttaði hún sig á því að hún vildi hætta í söfnuðinum:

„Ég var í Vottum Jehóva þangað til að ég var fimmtán ára og þekkti ekkert annað. Við fórum í messu tvisvar í viku og út að predika á laugardögum. Ég fór þá á milli húsa með ömmu minni og við töluðum við fólk. En svo þegar ég var orðin 14-15 ára fór ég að hlusta betur á boðskapinn og fann að þetta var ekki alveg fyrir mig þó að ég sé mjög trúuð. Þegar ég hætti var það mjög erfitt af því að mér leið eins og ég væri að hætta með ömmu minni. Hún tók því frekar illa og við töluðum ekki saman í þrjá mánuði, sem er mjög mikið fyrir okkur. En þegar afi minn lést töluðum við saman aftur og þá skildi hún þetta vel og við urðum aftur mjög góðar vinkonur, en þó að ég hafi hætt í Vottum Jehóva er ég mjög trúuð og bið mikið alltaf þegar ég er að ganga í gegnum erfið tímabil. Þó að ég mæti ekki í messur er ég alveg viss um að það er einhver æðri máttur sem er stærri en við.“

Donna skaust fyrst fram á sjónarsviðið á Íslandi sem þáttakandi í Ungfrú Ísland og síðar sem einn af meðlimum Áttunnar:

„Ég fékk talsverða athygli eftir Ungfrú Ísland og þaðan fór ég í Áttuna og það stækkaði svo hratt og þá byrjaði ég að fá mikla athygli á samfélagsmiðlum. Ég vildi það alveg, en svo þegar athyglin var komin vissi ég ekki alveg hvernig ég ætti að haga mér. Ég var svo ung að ég vissi ekki alveg hvernig ég ætti að höndla það og það hafði áhrif á andlegu hliðina hjá mér. Fólk leyfir sér að segja alls konar hluti á samfélagsmiðlum og þó að maður viti að maður eigi ekki að taka það inn á sig hefur það samt bara áhrif á mann. Ég var oft lítil í mér á þessum tíma og ég er mikil tilfinningavera, en með árunum hef ég lært að taka þetta ekki jafn mikið inn á mig.“

Donna hafði nánast gefið drauminn um að verða leikkona upp á bátinn þegar henni var boðið í áheyrnarprufur fyrir Agnes Joy:

„Mig hefur alltaf langað að verða leikkona, alveg frá því að ég var lítil stelpa, en var ekki viss um að það væri pláss fyrir mig á Íslandi. Þannig að ég var búin að setja þennan draum á hilluna þegar það var haft samband við mig út af Agnesi Joy. Ég hélt fyrst að það væri eitthvert grín og datt ekki í hug að þetta væri svona stórt hlutverk. Ég var mjög stressuð í áheyrnarprufunum og eftir að ég fór út í bíl og sagði kærastanum mínum frá þessu þurfti ég að biðja hann að stoppa bílinn og ég opnaði dyrnar og ældi.“

Í þættinum ræða Sölvi og Donna um leiklistina, samfélagsmiðla, falinn rasisma á Íslandi og margt fleira

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is og horfa á hann á YouTube:  



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál