Instagram: Stjörnubrúðkaup og barnalán

Samsett mynd

Landsmenn voru í sumarfíling í liðinni viku og nutu lífsins hvort sem það var í Reykjavík, í Skógarböðunum á Akureyri eða á Alicante á Spáni þar sem Jóhann Berg Guðmundsson og Hólmfríður Björnsdóttir gengu í hjónaband á La Finca Resortinu.

Brúðkaupsgleði! 

Á meðal gesta í brúðkaupi Jóhanns Bergs Guðmundssonar og Hólmfríðar Björnsdóttur voru Kristbjörg Jónasdóttir og Aron Einar Gunnarsson. Þau voru í sínu fínasta pússi sólbrún og sæl enda nýkomin frá Ibiza þar sem þau lifðu lífinu. 

View this post on Instagram

A post shared by ✨Kris J✨ (@krisjfitness)

Allt upp á 10!

Óskar Finnsson matreiðslumeistari og eigandi Finnsson Bistro í Kringlunni var gestur í brúðkaupi Jóhanns Bergs Guðmundssonar og Hólmfríðar Björnsdóttur. Hér er hann með dóttur sinni á leið í þessa glæsiveislu. Glerfínn og flottur! 

View this post on Instagram

A post shared by Oskar Finnsson (@oskarfinns)

LA eins og hún gerist best! 

Sandra Björg Helgadóttir einkaþjálfari sem búsett er í Kaliforníu þvældist um Los Angeles um helgina og endaði á Rodeo Drive sem er ein fínasta verslunargata borgarinnar. 

New York baby! 

Elísabet Gunnarsdóttir bloggari á Trendnet flaug til New York Stewart með flugfélaginu Play. Hún naut New York og Hudson-svæðisins í botn. 

Allt í stíl! 

Dansarinn Ástrós Traustadóttir klæddi sig upp á um helgina en það vakti athygli að hún og kærasti hennar, Adam Helgason, voru alveg í stíl. 

Brúðkaupsveisla!

Pattra var í brúðkaupi Jóhanns Bergs Guðmundssonar og Hólmfríðar Björnsdóttur sem haldið var á La Finca Resort um helgina. Hér er hún komin í sitt fínasta púss eins og henni er einni lagið en með henni á myndinni er dóttir hennar. 

View this post on Instagram

A post shared by Pattra S (@trendpattra)

Sæt í bleiku!

Birgitta Líf Björnsdóttir tók bleika litinn alla leið um helgina. Hún klæddist bleikri dragt og var með bleika tösku í stíl. 

Bert á milli! 

Brynhildur Gunnlaugsdóttir var í góðum fíling ásamt Ástu Sól Stefánsdóttur. Hvítar buxur eru að trenda mikið þessa dagana og var Brynhildur að sjálfsögðu í einum slíkum. 

Ekkert gefið eftir! 

Pétur Einarsson fyrrverandi bankastjóri er staddur í Bandaríkjunum þar sem hann er liðsstjóri liðs sem ætlar að hjóla þvert yfir landið. 

Lífið á toppnum! 

Birna Bragadóttir naut útivistar í Þórsmörk um helgina og var svona hoppandi kát eins og sést á myndinni. 

Allt í bleiku! 

Rithöfundurinn Hallgrímur Helgason er staddur í Þórshöfn í Færeyjum ásamt yngstu dótturinni og ástinni í lífi sínu, Öglu Magnúsdóttur bókaútgefanda. Þær tóku bleika litinn alla leið eins og Birgitta Líf Björnsdóttir! 

Meira bleikt!

Verkfræðingurinn og áhrifavaldurinn Katrín Edda Þorsteinsdóttir á von á stúlku með eiginmanni sínum, Markus Waaserbaech.

View this post on Instagram

A post shared by Katrin Edda (@katrinedda)

Tókst á við meiðsli og sigraði sjálfa sig! 

Sara Sigmunds lenti í sjötta sæti þegar hún keppti á Lowlands um helgina. Hún hefur verið að glíma við meiðsli og því var þetta mikill sigur fyrir hana. Eins og sést á myndunum er hún grjóthörð. 

Töffari upp á þaki!

Tónlistarkonan Bríet Ísis Elfar stökk upp á þak Þjóðleikhússins og smellti nokkrum glæsilegum myndum á Íslensku sviðslistaverðlaununum, Grímunni. 

View this post on Instagram

A post shared by BRÍET (@brietelfar)

Notið í botn á Akureyri! 

Fanney Ingvarsdóttir fór með fjölskyldu sína í Skógarböðin á Akureyri sem opnuðu nýlega og þykja mikið ævintýri. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál