Djammið var allsráðandi þessa vikuna og ef það er eitthvert efni sem á vinninginn þá eru það pallíettur. Þær voru út um allt. Instagramstjörnur vikunnar sem voru ekki í pallíettum voru einhvers staðar úti í heimi á baðfötum.
Manuela Ósk Harðardóttir og Inga Tinna Sigurðardóttir voru glæsilegar í teiti í Gamla bíói.
Sunneva Eir Einarsdóttir fór í glitrandi topp í París.
Hildur Sif Hauksdóttir fór í stutt silfrað pallíettupils og tók mynd.
Söngkonan Bríet fletti upp um sig! Það eru margar leiðir til þess að fagna. Þetta er án efa ein þeirra!
Saga B, sem er söngkona, birti mynd af sér á nærfötunum.
Áhrifavaldurinn Tanja Ýr nýtur lífsins á Flórída í Bandaríkjunum!
Jóhanna Helga Jensdóttir áhrifavaldur fór til Parísar og klæddi sig í sitt fínasta púss.
Beggi Ólafs var í heimsókn á Íslandi en hann býr í Kaliforníu um þessar mundir. Hann birti mynd af sér og nýju bókinni sinni í Leifsstöð og tilkynnti að hann myndi verja jólunum á Íslandi.
Söngkonan Heiðrún Anna Björnsdóttir er að vinna að nýrri tónlist. Hún setti sig í poppstjörnustellingar!
Ljósmyndarinn Saga Sig og kærasti hennar, Villi naglbítur, heimsóttu eyjuna Tenerife. Eins og myndirnar sýna fer þeim vel að vera í fríi.
Pattra pósaði í Hörpu.
Ástrós Traustadóttir, dansari og meðlimur í LXS-hópnum, hér í sínu fínasta pússi á veitingastað.
Leikkonan og leikstjórinn Dóra Jóhannsdóttir fór í förðun og svo í myndatöku. Útkoman er einstök.
Heiður Ósk Eggertsdóttir förðunarmeistari og einn af eigendum Reykjavík Makeup School naut lífsins í Búdapest.
Birgitta Líf Björnsdóttir er á Balí og nýtur alls sem sá suðræni staður hefur upp á að bjóða.
Aldís Amah Hamilton var ein af þeim sem var boðið í partíið með Alexu Chung á dögunum. Partíið hélt svo áfram þessa helgi.
Kristín Pétursdóttir leikkona og áhrifavaldur fagnaði þrítugsafmælinu sínu um helgina!
Hanna Rún dansari á svaðalegar systur eins og sést á þessari mynd.
Crossfitstjarnan Sara Sigmundsdóttir naut sín í botn í Skógarböðunum á Akureyri, en þar fékk hún alvöruljósasýningu þar sem norðurljósin dönsuðu um himininn.
Förðunarfræðingurinn Lilja Dís Smáradóttir lét taka fallegar myndir af sér í New York. Það gæti komið einhverjum á óvart hver tók ljósmyndirnar!
Klámstjarnan Edda Lovísa Björgvinsdóttir sýndi öll húðflúrin sem hún skartar í einlægum myndum.
María Rut Kristinsdóttir, kynningarstýra UN Women, deildi fallegri mynd af eiginkonu sinni, Ingileif Friðriksdóttur, fjölmiðlakonu og leikstjóra, en þær eiga von á barni saman.
Sjónvarpsdrottningin Berglind Festival veit hvað er mikilvægt í þessu lífi.
Skemmtikrafturinn Sóli Hólm og eiginkona hans, fjölmiðlakonan Viktoría Hermannsdóttir, skelltu sér til Svíþjóðar með yngstu börnin sín tvö.
Tiktokstjarnan Brynhildur Gunnlaugsdóttir skellti sér til Brussel í Belgíu á dögunum.