Fatahönnuðurinn Victoria Beckham hannaði fatalínu fyrir Target. Beckham hefur notið mikilla vinsælda fyrir hönnun sína undanfarin ár. Margar konur hafa þó þurft að neita sér um fatnað Beckham enda er hún ekki þekkt fyrir ódýra kjóla.
Nú hefur rofað til en Beckham fór í samstarf við bandarísku fatakeðjuna Target og er búin að hanna fatalínu á konur og börn.
Þetta er í fyrsta skipti sem Beckham hannar fyrir börn. „Ég veit hvaða efni börn elska af því ég er búin að vera að klæða þau lengi,“ sagði Beckham í viðtali við Vogue. „Ég nota það sem ég lærði verandi móðir.“
Línan kemur í Target-búðir 9. apríl og á heimasíðu Victoriu Beckham.