Leikkonan Jessica Biel er þekkt fyrir að skarta afslöppuðum hárgreiðslum. Í vikunni mætti hún með hárgreiðslu sem allar uppteknar konur geta unnið með, Biel setti einfaldlega á sig hárband. Vogue mælir með þessu fljótlega bragði Biel fyrir konur á hraðferð.
Biel, sem leyfði liðuðu hárinu að njóta sín rétt eins og hún hefði varla greitt sér, skartaði fjólubláu hárbandi við einstaklega fallegan ljósfjólubláan samfesting.
Nokkur ár eru síðan hárbönd og spangir tröllriðu öllu en svo virðist sem hárfylgihlutir séu komnir aftur í tísku. Hárbönd geta verið sniðug fyrir konur sem nenna ekki að eyða of löngum tíma fyrir framan spegilinn þegar veisluvertíðin hefst í desember.