Elísabet Englandsdrottning tók á móti fulltrúa Nígeríu, George Adesola Oguntade, og eiginkonu hans í Buckingham-höll. Gestirnir mættu í fötum í stíl við kjól drottningarinnar.
Drottningin var í klassískum kjól með munstri en grunnliturinn var í bleikfjólubláum tón. Nígerísku gestirnir mættu í þjóðlegum klæðnaði í afar svipuðum bleikfjólubláum lit. Ljósir litir lýstu síðan upp fatnað þeirra þriggja.
Það má því með sanni segja að það hafi orðið tískuárekstur í höllinni þó svo að sniðið hafi verið afar ólíkt. Nú er bara spurning hver hafði betur, drottningin í sínum vestræna kjól eða þau nígerísku í afríska fatnaðinum?