Stjörnurnar gefa ráð gegn bólum

Stjórnurnar eru líka með slæma húð.
Stjórnurnar eru líka með slæma húð. Samsett mynd

Bólur eru alltaf jafn óþolandi og óvelkomnar. Það eru ekki bara 15 ára gamlir unglingar sem glíma við bólur heldur fólk á öllum aldri út um allan heim. Stjörnurnar eru þar ekki undanskildar eins og sást vel á Kendall Jenner á Golden Globe fyrr í mánuðnum. Allar hafa þær sín ráð og sínar sögur. 

Cameron Diaz

Leikkonan glímdi lengi við bólur en það breyttist þegar hún fór að hugsa um hvað hún var að borða. Diaz segist hafa borðað ostborgara og franskar á hverjum degi en þegar hún hætti því fann hún hvernig húðin batnaði. Diaz hafði áður notað bæði krem og lyf í baráttunni við bólurnar en eftir á að hyggja segir hún að hún hefði ekki þurft á því að halda. Hún hefði einfaldlega átt að hlusta á líkama sinn. 

Cameron Diaz.
Cameron Diaz. AFP

Kendall Jenner

Fyrirsætan og raunveruleikastjarnan er enn að berjast við bólurnar, eitthvað sem hafði mikil áhrif á sjálfstraust hennar þegar hún var yngri. Hennar ráð núna er að láta bólurnar ekki stoppa sig. Sjálf fór hún eftir þessum ráðum á Golden Globe fyrr í mánuðnum. 

Kendall Jenner.
Kendall Jenner. AFP

Lorde

Söngkonan Lorde er á sama máli og Kendall Jenner. Hún birtir myndir af sér án farða og minnir fólk á að það sé allt í lagi að vera ekki gallalaus. 

Söngkonan Lorde.
Söngkonan Lorde. mbl.is/AFP

Natalie Portman

Líkt og hjá Cameron Diaz breytti matarræðið miklu hjá leikkonunni Natalie Portman. Portman sem er nú vegan hætti að fá bólur eftir að hún hætti að borða mjólkurafurðir og egg. 

Natalie Portman.
Natalie Portman. AFP

Victoria Beckham 

Fatahönnuðurinn og fyrrverandi kryddpían notar húðvörur sem frá húðsjúkdómalækninum Dr. Lancer og fer eftir ráðum hans. Beckham sem var áður fyrr með mjög slæma húð fór að ráðum læknisins sem sagði henni að borða lax á hverjum degi. 

Victoria Beckham.
Victoria Beckham. mbl.is/AFP

Miley Cyrus

Á meðan sumar stjörnur hafa fundið lausn með breyttu matarræði treysti söngkonan fagfólki til þess að finna lausn á húðvandamálum sínum. Eftir að hafa prófað sig áfram í með allskonar vörur leitaði hún til lækna. 

Miley Cyrus.
Miley Cyrus. AFP

Rihanna

Söngkonan sagði einu sinni að hún fengi bólur í heila viku í mánuði. Hennar ráð fyrir betri húð eru að drekka mikið vatn og hætta áfengisneyslu. 

Rihanna.
Rihanna. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál