Leikkonan Elle Fanning var töffaraleg þegar hún mætti á frumsýningu myndarinn Galveston á South by South by Southwest-hátíðinni á Austin, Texas um helgina í samfesting frá Ganni.
Samfestingar hafa verið vinsælir lengi en undanfarið hafa víðir samfestingar teknir saman í mittið, eins og sá sem Fanning klæddist, verið vinsælir.
Samfestingarnir minna helst á létta vinnugalla og passa því bæði í vorverkin sem og við hæla. Vinnugallar voru einmitt það sem dansarar FWD Youth Company klæddust þegar þær frumsýndu verkið Allar mínar systur á Reykjavik Dance Festival í síðustu viku. Svartir samfestingar sem þær klæddust sem teknir voru saman í mittið með svörtu belti minna töluvert á samfesting Fanning.
Anna Kolfinna Kuran, danshöfundur verksins, fann gallana á Ebay en þeir eru ætlaðir í logsuðuvinnu. „Þær voru í vinnunni, við að byggja mæðraveldið,“ segir Anna Kolfinna um valið á búningunum sem voru á sama tíma táknrænir og töff.
Samfestingarnir halda áfram að vera heitir út árið og mátti sjá þá nokkra á tískupöllunum á tískuvikunum í New York og París. Fyrirsætan Stella Maxwell gekk til að mynda fremst í flokki í leðursamfestingi á tískusýningu Zadig & Voltaire í New York.