Skipti fjórum sinnum um dress á einum degi

Kerry Washington lætur ekki sjá sig tvisvar í sama dressinu.
Kerry Washington lætur ekki sjá sig tvisvar í sama dressinu. AFP

Það var brjálað að gera hjá leikkonunni Kerry Washington á miðvikudaginn en hún passaði þó að láta ekki sjá sig í sama dressinu tvisvar. Alls sást Washington í fjórum mismunandi dressum en í hvert skipti sem hún skipti um föt lét hún laga á sér hárið. 

Á milli þess sem hún mætti í sjónvarpsþætti mætti hún á galakvöld Lehman College í fallegum síðkjól frá Delpozo. 

Kerry Washington í kjól frá Delpozo á miðvikudaginn.
Kerry Washington í kjól frá Delpozo á miðvikudaginn. AFP

Washington byrjaði daginn á því að mæta í sjónvarpsþáttinn Good Morning America í grænni kápu. Fylgihlutirnir voru aðalatriðið en leikkonan var með stóra gyllta eyrnalokka, hvít stór sólgleraugu og í appelsínugulum skóm frá Giuseppe Zanotti. 

Hún skipti um föt eftir þáttinn til þess að mæta í annan sjónvarpsþátt og gekk um götur New York í fallegri rauðri kápu og einstaklega flottum blómabuxum frá Proenza Schouler. 

Síðasti viðkomustaður Washington var spjallþáttur Jimmy Fallon þar sem Washington geislaði í glitrandi kjól frá Erdem. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál