Kvikmyndahátíðin í Cannes hófst í síðustu viku og lýkur um næstu helgi. Síðkjólar hafa verið áberandi á hátíðinni og fáar konur hafa sést í buxnadrögtum á rauða dreglinum eins og hefur verð vinsælt að undanförnu.
Ísland kemur við sögu á hátíðinni en á fimmtudaginn var kvikmyndin Arctic frumsýnd. Myndin sem tekin var upp á Íslandi skartar Mads Mikkelsen í aðalhlutverki. Í myndinni leikur einnig íslenska leikkonan Maria Thelma Smáradóttir. Maria Thelma lét sig ekki vanta á hátíðina og geislaði hún í síðkjólum á hátíðinni eins og sjá má.