Frú Beckham í rauðum skóm í brúðkaupinu

Victoria Beckham var í rauðum skóm við bláa kjólinn.
Victoria Beckham var í rauðum skóm við bláa kjólinn. mbl.is/AFP

Victoria Beckham tískuhönnuður og söngkona mætti í dökkbláu dressi í brúðkaup Meghan og Harrys í dag. Við dressið var hún í rauðum skóm með mjóum hæl. 

Dressið er hluti af línu hennar fyrir vor- og sumar 2019 og er það því með því ferskasta á markaðnum, enda ekki komið á markað. 

Pilsasíddin er að síkka en kjóllinn náði örlítið fyrir ofan ökkla þannig að skórnir sáust vel og fengu að njóta sín. 

Ermarnar á dressinu eru með klauf þannig að framhandleggir eru berir sem kom sér vel í hitanum í dag. Frú Beckham var svo með hatt eins og er til siðs í Bretlandi þegar brúðkaup eru haldin. Hún er mögulega ein af mjög fáum sem nær að vera ungleg og nokkuð töff með hattinn því flestar konur virðast miklu eldri en þær eru þegar þær eru komnar með hatt á höfuðið. 

Förðunin var mildari en oft áður, augabrúnir hæfilega litaðar, ekki of skinkulegar og varir náttúrulegar. Ef Smartland ætti að gefa henni einkunn fyrir heildarútlit fengi hún 8,5. Hún hefði fengið 10 ef hún hefði brosað aðeins meira. Það klæðir flesta nefnilega miklu betur en að vera með fýlusvipinn fastan á andlitinu. 

mbl.is/AFP
Victoria Beckkham kann að vera töff með hatt.
Victoria Beckkham kann að vera töff með hatt. mbl.is/AFP
mbl.is/AFP
mbl.is/AFP
David Beckham, Victoria Beckham spjölluðu við Elton John og David …
David Beckham, Victoria Beckham spjölluðu við Elton John og David Furnish fyrir brúðkaupið. mbl.is/AFP
mbl.is/AFP
mbl.is/AFP
mbl.is/AFP
mbl.is/AFP
mbl.is/AFP
mbl.is/AFP
mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál