Auðvelt að leika eftir hárgreiðslu Meghan

Brúðargreiðsla Meghan var með hversdagslegu yfirbragði.
Brúðargreiðsla Meghan var með hversdagslegu yfirbragði. AFP

Brúðargreiðsla Meghan, hertogaynjunnar af Sussex, vakti mikla athygli um síðustu helgi. Á meðan sumum fannst Meghan líta frábærlega út þóttu öðrum hárgreiðslan of venjuleg og kvörtuðu yfir lausum lokkum. Teddi Cranford, sérfræðinugr í brúðargreiðslum, sýndi People hvernig ætti endurskapa greiðslu Meghan eins og sést á myndbandi neðst í greininni. 

Hárgreiðslumaðurinn Serge Normant sá um að greiða Meghan fyrir stóra daginn en hann segir að það hafi tekið hann aðeins um 45 mínútur að greiða Meghan og markmiðið var að hafa greiðsluna tætingslega en þó þannig að hún héldi í nokkra klukkutíma. 

Meghan skartaði sömu greiðslunni um kvöldið.
Meghan skartaði sömu greiðslunni um kvöldið. AFP

Normant notaði langar venjulegar spennur í hár hennar og aðra hluti sem er hægt að kaupa ódýrt út í búð og notaði hrinlaga bursta þegar hann blés har Meghan. „Fólk getur endurskapað hana heima, algjörlega, jafnvel betur,“ sagði Normant.

Eins og sjá má á myndbandi sem Cranford birti á Instagram er mikilvægt að skilja eftir hárið fremst á höfðinu áður en hárið er sett í hnút. Með því eru fremstu lokkarnir lausir og sama tætingslega hversdagslega útlitið sem Meghan skartaði á brúðkaupsdaginn skapast. 

Meghan gat sett fremstu lokkana fyrir aftan eyru.
Meghan gat sett fremstu lokkana fyrir aftan eyru. AFP



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál