Fimm þúsund króna kjóll Katrínar seldist upp

Katrín hertogayja er ekki alltaf í rándýrum fötum.
Katrín hertogayja er ekki alltaf í rándýrum fötum. AFP

Katrín hertogaynja hefur látið lítið fyrir sér fara síðan hún eignaðist sitt þriðja barn í apríl. Katrín mætti í gamalli kápu í brúðkaup Meghan og Harry og um síðustu helgi lét hún ódýran kjól duga þar sem hún naut veðurblíðunnar með tveimur eldri börnum sínum. 

Katrín sem oftar en ekki sést í dýrum merkjum við opinberar skyldur klæddist bláum kjól Zöru um helgina. Breskir fjölmiðlar greina frá því að kjóllinn kosti einungis 39,99 pund eða um 5.650 íslenskar krónur. 

Það þarf ekki að vera dýrt að leika eftir stíl hertogaynju miðað við þetta fataval en það er eitthvað sem líklega margar konur hugsuðu og seldist kjóllinn upp nokkrum klukkutímum eftir að myndirnar af Katrínu í kjólnum birtust. 

Katrín klæddist þessum sumarlega kjól frá Zöru um síðustu helgi.
Katrín klæddist þessum sumarlega kjól frá Zöru um síðustu helgi. ljósmynd/Zara
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál