Clare Waight Keller sýndi nýja hátískulínu franska tískuhússins Givenchy fyrir næsta vetur í París á sunnudaginn. Tískusýningin var sú fyrsta síðan að hún hannaði brúðarkjól Meghan hertogaynju fyrir brúðkaup hennar og Harry Bretaprins í maí.
Ekki mátti sjá sams konar kjóla og Meghan klæddist en þó var nóg af hvítum kjólum og reyndar svörtum líka. Hvítu kjólarnir á tískusýningunni voru mun frjálslegri en kjóll Meghan en þó þannig að hvaða brúður sem er væri eflaust til í að gifta sig í einum slíkum.