Rihanna lokar tískuvikunni í New York

Rihanna.
Rihanna. AFP

Tónlistarkonan Rihanna hefur ekki setið auðum höndum síðasta árið þó hún hafi ekki tekið þátt í tískuvikunni í New York síðasta vor. Lokasýning tískuvikunnar í New York verður í höndum Rihönnu, þar sem hún mun sýna sitt eigið merki, Savage x Fenty. Hún hefur áður gengið fyrir Puma í línu sem hún hannaði, Fenty Puma. 

Undirfatamerkið hennar Savage x Fenty verður síðasta sýningin á tískuvikunni í New York, 12. september næstkomandi. Rihanna fór af stað með Savage X Fenty seinasta vor, og á tískuvikunni í New York mun hún kynna haustlínu merkisins. 

Savage x Fenty hefur fengið lof fyrir að bjóða upp …
Savage x Fenty hefur fengið lof fyrir að bjóða upp á nærföt í stærri stærðum. skjáskot/Instagram

Savage x Fenty hefur fengið mikið lof síðan hún kom út og hefur verið hrósað fyrir fjölbreyttar stærðir. Þá eru fyrirsætur af öllum uppruna og stærðum í auglýsingum fyrir undirfatamerkið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál