Í buxum við jakkann í þetta skiptið

Harry og Meghan voru bæði í jakkafatajökkum og síðubuxum.
Harry og Meghan voru bæði í jakkafatajökkum og síðubuxum. AFP

Meghan hertogaynja af Sussex og Harry Bretaprins hafa verið dugleg að klæða sig í stíl að undaförnu. Meghan klæddist útvíðri buxnadragt þegar þau Harry heilsuðu upp á veik börn sem hlutu viðurkenningu fyrir hetjulega baráttu sína í veikindum sínum í gær, þriðjudag. 

Harry og Meghan voru bæði í síðbuxum en buxur Meghan …
Harry og Meghan voru bæði í síðbuxum en buxur Meghan voru þó útvíðar. AFP

Prinsinn er duglegur að klæðast jakkafötum en svo virðist sem hertogaynjan hafi einnig tekið ástfóstri við jakkafataútlitið. Í síðustu viku vakti hún mikla athygli fyrir að klæðast stuttum kjól frá Judith & Charles sem leit út fyrir að vera eins og síður jakkafatajakki. 

Jakkafatakjóllinn var í styttra lagi fyrir meðlim bresku konungsfjölskyldunnar að mati einhverra. Hvort sem gagnrýnisraddirnar höfðu úrslitaáhrif á valið á buxnadragtinni frá Altuzarra sem Meghan klæddist í gær skal þó látið ósagt. 

Harry og Meghan voru í stíl þann 29. ágúst.
Harry og Meghan voru í stíl þann 29. ágúst. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál