Eliza bar af í fagurbláum kjól

Eliza Reid forsetafrú var glæsileg í bláum kjól við setningu …
Eliza Reid forsetafrú var glæsileg í bláum kjól við setningu Alþingis.

Eliza Reid hélt áfram að vekja athygli fyrir fallegan klæðnað þegar hún var viðstödd setningu Alþingis í gær ásamt eiginmanni sínum Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands. Forsetafrúin bar af í fagurbláum kjól en mikið var um svartan og dökkan klæðnað við þingsetninguna. 

Eliza keypti kjólinn í Kanada þegar hún var í sumarfríi þar í júlí í nýrri og lítilli kjólabúð og segir Eliza að hönnuðurinn vinni sjálf á staðnum. Eliza er sjálf frá Kanada en búðin er í þorpi nálægt staðnum þar sem hún ólst upp.

Bjartur liturinn á kjólnum fékk að njóta sín þar sem Eliza klæddist ljósum sokkabuxum og ljósum skóm við. Hún setti svo punktinn yfir i-ið með því að bera brjóstnælu frá Georg Jensen. 

Eliza Reid var flott í bláum kjól og ljósum sokabuxum …
Eliza Reid var flott í bláum kjól og ljósum sokabuxum og ljósum skjóm. mbl.is/Kristinn Magnússon
Eliza Reid skreytti kjólinn fallega með brjóstnælu.
Eliza Reid skreytti kjólinn fallega með brjóstnælu. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál