Tróð sér í kjólinn frá 1999

Sarah Michelle Geller sprellaði á Instagram.
Sarah Michelle Geller sprellaði á Instagram. Samsett mynd

Leikkonan Sarah Michelle Geller tróð sér í næstum því 20 ára gamlan kjól þegar Emmy-verðlaunin voru afhent á mánudaginn. Geller sem var ein af stærstu stjörnunum í bandarísku sjónvarpi þegar hún lék í Buffy the Vampire Slayer horfði á hátíðina uppi í sófa í þetta skipti. 

Ástæðan fyrir því að hún gerði vel heppnaða tilraun til þess að klæða sig í kjólinn frá árinu 1999 er sú að blái kjóllinn er uppáhaldskjóllinn sem leikkonan hefur klæðst á Emmy-verðlahátíðinni. Geller vann Emmy-verðlaun árið 1995 fyrir All My Children. 

Kjóllinn er frá Veru Wang en Geller var 22 ára þegar hún klæddist honum í fyrsta skipti. Hann leit vissulega öðruvísi út á henni nú þegar hún er 41 árs og í Ugg-skóm við, en engu að síður glæsilegur. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál