Viltu hár eins og Beyoncé?

Beyoncé er með eitt fallegasta hár sem hægt er að …
Beyoncé er með eitt fallegasta hár sem hægt er að finna. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Neal Farinah gefur góð ráð þegar kemur að hári en hann hefur séð um hárið á söngkonunni Beyoncé síðastliðin 13 ár. 

Í viðtali við ELLE segir Farinah að aðalatriðið sé að nota ekki of mikið af vörum á hárið. Hann segir að til að fá stórt hár í anda Beyoncé sé mikilvægt að notast við nýjustu tækni þegar kemur að krullujárnum. Hann prófar sig áfram reglulega og leyfir sér að mistakast og reyna aftur. 

Til að fá sítt hár er mikilvægt að leyfa því að vaxa, nota góðar olíur og næringu í hárið og verja hárið fyrir hita. Gott mataræði skiptir einnig máli. 

Hann þvertekur fyrir að hún sé með hárkollu þessa dagana. Hárið á henni sé fljótt að vaxa og mjög ræktarlegt.

Farinah talar lítið um vörurnar sem hann notar í hárið á Beyoncé en á hárgreiðslustofunni hans í New York notar hann mikið Aveda-vörurnar. Hann er auðmjúkur og orðvar og segir að minna sé meira þegar kemur að efnum í hárið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál