Stórfurðulegar nærbuxur

Þessi mynd er notuð til þess að auglýsa nærbuxurnar.
Þessi mynd er notuð til þess að auglýsa nærbuxurnar. skjáskot/Amazon

Þangað til nú hefur það ekki þótt mjög smart að láta sjást móta fyrir kameltá en það gerist oft þegar konur ganga í buxum með háu mitti. Nú virðist vera breyting á en á Amazon er hægt að kaupa sérstakar nærbuxur sem búa til gervikameltá.

„Þessar nærbuxur sem leyna á sér lofa að „lyfta og aðskilja“ rétt eins og góður brjóstahaldari. Þú getur verið viss um að hafa áhrif á fólkið sem þú hittir,“ segir í lýsingu á nærbuxunum.

Kameltánærbuxurnar kosta ekki nema 16 pund eða um 2.500 krónur og er þeim lýst þannig að fólk geti farið með kameltá hvert sem það fer. Eins og sést á myndum af nærbuxunum er sérstakur púði í klofinu sem gerir það að kloflínan myndast í gegnum buxur kvenna rétt eins og þær væru með kameltá. 

Fólk getur farið með kameltá hvert sem er í þessum …
Fólk getur farið með kameltá hvert sem er í þessum nærbuxum. skjáskot/Amazon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál