Nikolai, Danaprins og barnabarn Margrétar Danadrottningar, hefur komið sér hressilega í fréttirnar í heimalandi sínu. Nikolai er sonur Jóakims prins og Alexöndru, fyrri konu Jóakims.
Svo virðist sem hann eigi erfitt með að finna sig en hann tilkynnti á dögunum að hann væri hættur í hernum og ætlaði að taka U-beygju. Hann ætlar nefnilega að snúa sér tímabundið að fyrirsætustörfum eða þar til hann áttar sig og finnur út úr því hvað hann vill gera við líf sitt (annað en það að vera hluti af dönsku konungsfjölskyldunni).
Tískuheimurinn hefur þegar tekið vel á móti Nikolai en hann hefur til dæmis setið fyrir hjá frægu tískuhúsunum Dior og Burberry. Það verður að teljast ansi góður árangur hjá 18 ára Dana en ekki er útilokað að ætterni hans hafi hjálpað eitthvað til í þeim efnum. Á myndinni sem fylgir fréttinni má sjá prinsinn í myndatöku hjá Dior. Glöggir sjá sterkan svip foreldra hans í drengnum, þeim Alexöndru prinsessu og Jóakim prins Danaveldis.